thorhallur_about_effekt_quality9

Þórhallur Kristjánsson, grafískur hönnuður - FÍT
GSM: 893 3262 - Tölvupóstur: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Þórhallur er grafískur hönnuður og eigandi Effekt. Hann útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri árið 1995. Frá þeim tíma hefur hann starfað bæði á stórum sem smáum auglýsingastofum á höfuðborgasvæðinu og á Akureyri. Síðustu ár hefur hann starfrækt Effekt, jafnframt því að leiðbeina við listhönnunardeild Myndlistaskólans á Akureyri.

Sem hönnuður hefur Þórhallur tekist á við flest það sem á annað borð getur rekið á fjörur grafísks hönnuðar. Þar má nefna altæka hönnun á kynningarefni fyrir margskonar fyrirtæki og stofnanir. Í því felst hönnun á fyrirtækisauðkennum, bæklingum og kynningarefni, margmiðlunarefni, heimasíðum, auglýsingum, bréfsefni, nafnspjöldum, reikningum, umbúðum og ýmsu öðru sem snýr að rekstri og ímyndaruppbyggingu fyrirtækja.

 

fotur

© 2012 Thorhallur Kristjansson

Effekt auglýsingastofa | Hafnarstræti 82 | 600 Akureyri
Sími: 893 3262 | effekt(hjá)effekt.is

facebook-icon  Við erum á Facebook